9.1.2009 | 20:45
Ferðalög
Þá er maður aftur á ferðalagi. Eftir að hafa flogið til Florida til að halda upp á jólin, flogið til NYC til að halda upp á áramótin og svo eytt síðastliðinni viku í Íþöku þá sá minn ástæðu til að pakka aftur í ferðatösku og leggja land undir fót (eða sitja í rútu). Nú er það hins vegar heimferð sem er málið.
Flugið til Íslands er ekki fyrr en á morgun en um að gera að nýta sér gistiaðstöðu þá sem var í boði á Manhattan. Ásgeir Columbia-nemi hefur nefnilega gerst svo indæll að bjóða mér að blunda í íbúð hans í eina nótt. Í þessu tilboði fólst einnig þrælskemmtilegt kvöld á Manhattan og einungis vitleysingjar neita svoleiðis. Svo fæ ég að hjálpa honum við smá flutninga á morgun, gerist ekki betra!
Jólafríið hefur annars verið alveg frábært. Við Dee eyddum jólunum hjá fjölskyldu hennar í leti og afslöppun sem var afar kærkomið eftir strembið haust. Ferðin var aðeins flóknari en venjulega því flugið okkar fór frá Newark sem er í New Jersey. Við keyrðum semsagt Honduna okkar þangað (hef ég minnst á að þetta er frábær bíll?), lögðum á tryggum stað og flugum suður á bóginn. Hálfri tylft daga síðar komum við aftur, greiddum fyrir stæðið og tókum stefnuna á Manhattan. Lentum í sannkallaðri umferðarþvögu en þetta reddaðist allt og áður en við vissum af vorum við komin á eyjuna og leitandi að FDR drive. Það er vandasamt að keyra þarna enda erfitt að vera ekki í sí og æ að glápa á alla skýjakljúfana. Ferðinni var heitið á 91. stræti og 2. breiðgötu í íbúð þeirra Bjarna og Elísabetar en þau fóru nefnilega heim til Íslands og voru svo elskuleg að leyfa okkur að halda íbúðinni heitri í nokkra daga. Næsta hálfa tylft daga fór svo í að labba, rölta, ganga, tölta, þramma og jafnvel spássera um götur þessarar stórborgar. Við löbbuðum einfaldlega út um allt og jafnvel meira til. Máttum við þola ansi kalt veður og þokkalega ör loftskipti. Á gamlársdag urðum við meira að segja vör við frosna þurravætu. Það tæki dágóða stund að tíunda alla staði sem við heimsóttum og skoðuðum, en ég læt duga að segja að þetta hafi verið frábær ferð, borgin alltaf jafn heillandi.
Nú er minn semsagt kominn aftur í stutt stopp, skrifa þessa færslu í íbúðinni hans Ásgeirs á meðan ég bíð eftir að hann klári dagsverkið í skólanum. Kaffiklukkan í mér er hins vegar farin að tifa af nokkrum ákafa og því kveð ég að sinni og fer á kreik í leit að næstu kaffibúllu.
Hlakka til að sjá sem flest ykkar á næstu tveimur vikum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 00:26
Spennan...
19:00, 4. nóvember 2008:
Nú er komið að því! Ég sit að sjálfsögðu límdur við sjónvarpið í kvöld enda spennan í algleymingi. Einnig eru opnar nokkrar vefsíður sem gefa nákvæmar upplýsingar eins og þær berast. Aumingja F5 takkinn hjá mér, hann verður líklega þunnur á morgun.
Það er ansi snemmt núna, búið að bóka Vermont fyrir Obama og Kentucky fyrir McCain og tölur farnar að berast frá mikilvægum fylkjum eins og Virginia og Florida. Í Indiana er baráttan hnífjöfn. Jæja, ég er spenntur og ætla að snúa mér aftur að refresh takkanum og sjónvarpinu. Áfram Obama.
21:00 Öppdeit:
Obama tók Pennsylvaniu, algjört lykilatriði í þessu og Indiana er enn alveg í járnum. Obama er einnig yfir í Florida en þar hefur bilið verið að brúast, vonandi ekki mikið meira. Staðan er samt 174-49 Obama í vil. Munum að 270 er markmiðið... Áfram Obama!
22:45 Öppdeit:
Staðan nú 207-135 eftir að McCain fékk Texas, sem kom fáum á óvart. Eftir að Obama tók Ohio eru flestir á því að McCain getur ekki unnið lengur, án einhvers konar kraftaverks. Staðan er semsagt mjög björt! Nú bíðum við bara eftir að Florida, North Carolina og Virginia detti inn en í öllum þessum er Obama með litla forystu. Ég held að best sé fyrir mig að halda á pöbbinn og fagna úrslitunum sem eru nú nánast augljós! Áfram Obama!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 02:41
Blogg!
Jæja það kom þá að því að ég mundi eftir tilvist þessarar síðu. Maður hefur fylgst með fréttum af Íslandi undanfarnar vikur og trúir því varla að þetta sé að gerast. Hérna spyr mig annar hver maður hvort Ísland sé ennþá til og hvort matur sé til á búðarhillunum. Ég reyni bara að hvetja menn til að fara þangað og sjá sjálfir, enda er varla til betri tími en nú að kaupa sér íslenskar krónur, skilst mér.
Hérna í Bandaríkjunum er allt að sjálfsögðu að verða vitlaust útaf forsetakosningunum sem eru á næsta leyti. Til eru vefsíður sem fylgjast með könnunum og mín uppáhalds síða heitir FiveThirtyEight.com. Sá síðu rekur e-r snillingur sem notar tölfræði aðferðir til að greina kannanir og spá í spilin. Þar hefur Obama verið spáð sigri undanfarnar vikur og fögnum við því að sjálfsögðu mjög! Það er að mínu mati algjölega krítískt að Obama vinnur þessar kosningar. Nú finnst mér McCain ágætis kall og allt svoleiðis (reyndar hefur hann hlaupið til hægri í þessari baráttu, kannski fannst mér hann fínni í janúar), en ekki er hann ungur! Hverjar eru t.d. líkurnar á því að hann lendi allt í einu í heilsuveseni sem forseti? Og ef e-ð slíkt gerist þá erum við að tala um Palin forseta! Mér hryllir við því einu að hugsa um þá stöðu. Obama verður að vinna. Punktur.
Svo er alveg merkilegt hversu heimskuleg baráttan getur orðið hérna. Þetta þarf alltaf að fara að snúast um einhverja meðalmennsku. Frambjóðendur mega ekki vera of klárir, því þá eru þeir stimplaðir sem besserwisserar og elítusnobb. Hvað er að því að vera með forseta sem hefur eitthvað á milli eyrnanna, annað en tómt suð? Eflaust eru einhverjir sammála því að Bush yngri er svona "meðalmaður", viljum ekki slíkt bull aftur. En samt fer það þessa leið. Nú getur maður ekki kveikt á sjónvarpinu án þess að sjá McCain eða Palin bulla um Jóa pípara. Jói pípari?!? Er ekki verið að grínast í manni? Er ekki hægt að ræða málin á alvarlegum og málefnalegum nótum án þess að gera svona barnasögu úr þessu? Ég veit ekki hvort hneykslar mig meira, að frambjóðendur sjái eitthvað gott í því að tala svona niður til kjósenda, eða það að þetta virðist alltaf vera gert og alltaf með góðum árangri.
Ég missti mig greinilega aðeins hérna að ofan, maður er kannski búinn að fá nóg af kosningabaráttu og því sem henni fylgir. Ég hlakka mikið til 4. nóvember og að sjá þetta allt klárast.
Annars er komið haust hérna úti. Sumarið dokaði þó við þokkalega lengi og síðast fyrir viku var ég úti á stuttbuxunum að grilla kvöldmat á grillinu sem við Dee keyptum okkur í sumar. En nú er öllu kaldara. Í kringum frostmark í dag og því er gamanið búið. Mér skilst nú samt vera kominn bullandi vetur heima þannig að ég kvarta ekki!
Komið nóg að sinni, best að horfa aðeins á imbann og skella sér svo í háttinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.6.2008 | 02:17
Sumar og sól
Jæja, kominn aftur til Íþöku í Ameríska sumarið. Hérna er bara heitt og fínt, stuttbuxurnar í yfirdrifi og þrumuveðrin þrælskemmtilegu ansi tíð.
Dvölin stutta á Íslandi var að sjálfsögðu mjög ánægjuleg. Alltaf gaman að kíkja heim og hitta vini og ættingja. Ferðin út var eins og vanalega löng og þreytandi, en í þetta sinn var ég svo heppinn að fá að sitja á fyrsta farrými Flugleiða vegna "sætamisskilnings." Þetta var jómfrúarferð mín í betri sætunum og bara mjög notalegt verð ég að segja. Ekki hægt að kvarta undan Reserva víni frá Rioja með nautasteikinni! Þegar við áttum um það bil klukkutíma eftir af fluginu sat ég svo og horfði út um gluggann, sem er að sjálfsögðu ekki í frásögur færandi nema hvað að allt í einu flýgur undir vélina okkar eitt stykki B-2 Stealth Bomber! Við erum ekki að tala um eitthvað í fjarska, þetta kolsvarta flykki þaut undir sætið mitt og var það nálægt að ég bæði heyrði í því og fann fyrir. Ég bjóst við því að heyra fljótlega í flugstjóranum svo að allir fengu útskýringar á þessum drunum, en ekkert kom. Spurning hvort þeir hafi yfir höfuð vitað af vélinni... Allavega þokkalega magnað að sjá þessa vél og þetta líka nálægt.
Nú er dagskrá sumarsins öll að koma á hreint, maður verður í skólanum virka daga að rannsaka tölfræði fyrir Bruce Beygjunaut (Turnbull). Í næstu viku ætlum við Dee til Florida að heimsækja fjölskyldu hennar í nokkra daga, verðum þar einmitt á þjóðhátíðardegi kananna. Það verður spennandi að sjá hvernig þeir halda upp á þetta. Ég er ekki sannfærður um að þetta muni ganga nógu vel, hvaða leið á t.d. skrúðgangan með skátunum að fara? Ekki er neitt Víðistaðatún til að enda á og ég er alls óviss að nokkuð muni sjást til fjallkonunnar (e. mountain woman). En ég er til í að vera víðsýnn og gefa þeim tækifæri, skal láta vita hvernig þetta tekst til... Svo stefnum við á að fara til New York City og eyða þar nokkrum dögum seinna í sumar. Ég hlakka mikið til að fara þangað aftur, hreint mögnuð borg og ótrúlega margt að gera.
Allavega, nóg komið í bili (og nóg til að róa systur mína vonandi). Jafnframt má ég ekki vera að því að skrifa lengur vegna þess að GTAIV bíður í xboxinu og alveg nauðsynlegt að sinna þeim leik, enda hvílíkt meistaraverk...
Með vaðandi virðingu,
Baldur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2008 | 02:55
Helköttaður fyrir páska
Hér hefur ýmislegt gengið á undanfarnar daga vikur. Sjitt.
Fyrst ber að nefna að minn stóðst próf. Þetta próf var aðeins mikilvægara en landafræðiprófið í 8. bekk en niðurstaðan í þessu réði úrslitum um hvort ég fengi að vera hér áfram. Ég þurfti semsagt að halda fyrirlestur fyrir þriggja manna dómnefnd sem mátti henda öllum heimsins spurningum framan í mig. Í þetta sinn (já, þetta var í annað sinn) var ég tilbúinn. Matti tölfræðisnillingur féllst á að hlusta á æfingarfyrirlestur og spurði svo margra spurninga að planaði klukkutíminn varð að þremur og í lokin var lítið eftir af röddinni. Við þökkum Matta kærlega fyrir þetta innlegg, mjög gott að geta æft sig fyrir svona lagað og ég þóttist heldur betur tilbúinn eftir þetta. Til að gera langa sögu stutta, þá stóð ég mig vel, var dæmdur "easily at the passing level" hvað sem það nú þýðir og svo ráðlagt að fara að huga að hugsanlegu doktorsverkefni.
Þessa dagana geng ég því um gólf og ræði við þá prófessora sem ég gæti hugsað mér að vinna með. Það er fyrir öllu að spennandi verkefni finnist, og alls ekki víst í hvaða geira það verður. Upphaflega þóttist minn hafa áhuga á fjármálastærðfræði, en nú kemur margt annað til greina. Í dag talaði ég t.d. við Pétur nokkurn Jackson (alnafna leikstjórans kunna) sem fæst við kerfis verkfræði (nú er ég að búa til eigin þýðingu). Dæmi um verkefni sem hann bauð upp á var að skoða hentugar staðsetningar á vara pörtum í flugvélar. Hér er ógurlega einfölduð útgáfa af verkefninu: Hentar fyrir Icelandair að geyma aukahluti í hreyfla á JFK flugvellinum (geymslupláss er dýrt) eða borgar það sig frekar að panta og bíða í auka tíma þegar á hlutunum þarf að halda? Þetta er spennandi, en minn á eftir að tala við þó nokkra og verður gaman að sjá hvað úr verður.
Hef þetta ekki lengra í bili, en kem aftur fljótlega með uppgjör Boston ferðar sem við Dee fórum í um helgina. Boston er stórskemmtileg borg, læt líka nokkrar myndir fylgja með.
Getraun nr.1: Við Dee fengum okkur öl á skemmtilegri og vel þekktri krá í Boston. Hvað heitir kráin?
Getraun nr.2: Ég er farinn að lyfta reglulega og ætla að verða helköttaður fyrir páska, massaður í rusl og tanaður í drasl. Hver gerði þennan frasa ódauðlegan?
Í verðlaun er eðal amerískur bjór fyrir þá sem koma í heimsókn (ekki vatns sull eins og Miller eða Bud, heldur alvöru). Taka skal fram, að augljóslega er einungis hægt að vitja verðlauna hér í landi tækifæranna.
Baldur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.11.2007 | 02:23
hummhumm
Var að klára heimapróf sem ég hef verið að vinna í undanfarnar tvær vikur og er því ekki mótíveraður til að gera nokkurn skapaðan hlut eins og er. Það er heldur betur góð tilfinning að önnin sé að fara að klárast, en ég verð að viðurkenna að um miðbikið leist mér ekki á blikuna vegna álags. Gott ef það hafi ekki verið smá þunglyndi jafnvel og hugleiðingar um flutninga heim til Íslands. En þetta reddast nú allt yfirleitt og ekki laust við að ég hafi jafnvel lært eitthvað í haust. Ekki man ég það nú eins og er, en ég er viss um að eitthvað komi til með að sitja eftir...
Hér í US and A voru gefnar þakkir í síðustu viku. Það er skemmtileg hátíð verð ég að segja. Aðal hátíðardagurinn var náttúrulega fimmtudagurinn en þá bröltum við Dee á fætur upp úr 10 og tókum að undirbúa kalkúninn (hún stjórnaði að sjálfsögðu, ég gerði bara það sem mér var sagt). Í bakgrunninum er svo hin árlega Macy´s Day Parade þar sem fjöldinn allur af fólki röltir niður Broadway og heilmikið húllumhæ. Upp úr 1 gat ég svo sest og horft á ruðninginn, en boðið var upp á þrjá leiki yfir daginn svo kaninn hafi nóg á að horfa á meðan borðað er. Það kannast sjálfsagt allir við fyllinguna sem serveruð er með fuglinum en hápunktur máltíðarinnar er að mínu mati sætkartöflukasserólið sem er algjört lostæti. Sá réttur er jú líka sannkölluð kaloríubomba en manni er alveg sama, bragðið setur mann í einkennilegan "fíling" og ekkert hægt að gera annað en að fá sér meira.
Á föstudeginu fara svo næstum allir kanar að versla jólagjafir. Einhverra hluta vegna þykir það góð hugmynd að allir fari í jólainnkaupin á sama degi, og helst allir snemma morguns. Ég á enn eftir að prófa þetta, en orðið á götunni er það að þeir hörðustu borði á sig gat til miðnættis og fari svo og standi í röðum fyrir utan búðirnar sem opna fjórðungi úr sólarhring síðar. Það er sjálfsagt eitt að gera það á Florida í góðu veðri, en hérna fyrir norðan? Sumt fólk er bara ekki í lagi...
Svo eru það jólaáformin, en þau eru ólík fyrstu drögum. Vegna veikinda pabba hennar Dee verðum við tvö hjá fjölskyldu hennar á Florida fram til 26. des og fljúgum svo til Íslands til að fagna áramótunum. Það verður sérstök upplifun að halda jól í Bandaríkjunum, og það á Florida í þokkabót... Pakkarnir opnaðir á jóladag (hvað er það?) og pálmatré fyrir utan stofugluggann. Jeminn. En þetta verður örugglega mjög notalegt, og bara skemmtilegt að upplifa öðruvísi jól en haldin eru heima. (mér hefur verið sagt að á aðfangadagskvöld er alltaf lasagne í matinn, hmm)
Í jólagjöf langar mig svo í einhverja bók eftir Albert Straumfjörð. Þið megið velja hvaða bók það verður, bara hafa það klassískan Straumfjörð. Þið vitið... baðstofurómantík... sviðasulta og skítalykt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2007 | 01:52
Kreisí
Á það til að hverfa og biðst velvirðingar á því...
Nú er tekið að hausta hérna í Íþöku og loksins á miðvikudaginn var fór hitinn niður fyrir 20 stig. Í dag var t.d. frábært veður - ef maður er leiður á sumrinu - 5 stiga hiti og rigning. Það er alveg magnað hvað hitinn endist lengi hérna, en ég gerði allavega ekki ráð fyrir því að vera enn á stuttbuxum fram í október! Nú er það búið og er það bara hið besta mál, alltaf gaman þegar veturinn er á leiðinni.
Hérna hefur allt verið á haus, eins og venjulega. Einhver laug því að mér að 3. misserið yrði þægilegra en það hefur ekki alveg gengið eftir. Maður alveg jafn mikið á bólakafi í heimavinnu og í fyrra. Eitthvað hikstaði þetta hjá mér um daginn er ég tók svokallað qualifying próf, átti ekki góðan dag og þarf því að endurtaka það í janúar (eða skrifa masters ritgerð og hypja mig, mitt val). Minn hefur því legið undir feldi undanfarna daga og hugsað málið en ég hallast nú að því að reyna þetta aftur fyrst sá valkostur er til staðar og vonandi gengur þetta betur í annað skiptið. Bara að bíta á jaxlinn! (eða bíta í öxlina eins og ég hélt að þetta þýddi þegar ég var 5 ára)
Ætla að minnast aðeins á kung fu tímana sem ég hef verið að sækja. Þetta er nú kannski ekki alveg það sem ég átti von á, en áhugavert engu síður að kynnast þessu. Kennarinn tekur þá stefnu að reyna að kynna sem flesta hluti sem þýðir þá að maður eyðir ekki miklum tíma í að æfa hverja tækni fyrir sig. Hann hefur kennt þetta í 15 ár og veit því örugglega hvað hann syngur, en þetta á ekkert sérstaklega við mig. Allavega, maður hefur lært alls konar stellingar, varnir, högg og spörk og svosem fínt að kynnast þessu. Tek samt pottþétt íshokkí kúrs í vor!
Svo hef ég verið að spila fótbolta í Ithaca-league í þokkalega misjöfnu liði. Við eigum okkar ágætu stundir en hópurinn er engan veginn nógu breiður (90 mínútna leikir alltaf spilaðir) og það kemur stundum ansi illa út. Gaman að segja frá því að hlutfall Íslendinga í liðinu er óvenju hátt en við erum þrír strákarnir sem mætum í flesta leiki. Það sem fer nú kannski mest í taugarnar á mér í þessari deild er hve afspyrnu slakir dómararnir eru. Maður hefur oft verið spaðaður niður af einhverjum brjálæðing, litið upp úr drullunni og séð að dómarinn hefur dæmt mig brotlegan! Einnig virðast sumir þeirra einfaldlega ekki kunna rangstöðuregluna. Ótrúlega oft sem flautan gellur með einhvern algjörlega fáránlegan dóm og að sjálfsögðu þýðir ekkert að ræða við þessa menn. Matti varð svo pirraður á þessu í síðasta leik að hann fékk gult spjald fyrir hreyta í dómarann "why don't you google offsides man?" Samt má nú skemmta sér vel við þetta, alltaf gaman í boltanum...
Það er nú orðið ansi langt síðan maður hefur skellt sér út á pöbbinn, ansi sorglegt það en þetta er kannski bara eðlileg þróun. Það er allavega svolítið merkilegt þegar klukkan er að nálgast 7 á föstudagskvöldi og í stað þess að hugsa "ahh farið að styttast í bjórinn" þá er maður að pæla "hvað á ég að gera í kvöld... heimadæmi eða rannsóknir?" Ljóst að maður verður að fara að hrista sig fljótlega, hver býður sig fram til að kíkja til Íþöku og draga mig út á lífið yfir eina helgi? Áhugasamir mega hringja og boða komu sína... hehe
Bless í bili...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.9.2007 | 01:56
Hausthlýja
Kominn tími til að dusta rykið af lyklaborðinu og láta aðeins heyra í mér hérna í Íþöku. Hér hefur verið með eindæmum hlýtt og notalegt síðan ég kom. Í gær voru meira að segja slegin hitamet fyrir september í mið-New York fylki er hitinn fór í 35°C. Það er kannski einum of, en þó ansi þægilegt að hafa svona góðan hita í nokkrar vikur áður en fer að hausta. Ég er nú reynslunni ríkari og veit hversu langur og kaldur veturinn mun verða.
Búinn að vera hérna úti í þrjár vikur núna og skólastarfið komið á fullt skrið enn á ný. Þessa önnina var ég svo heppinn að fá að vinna að rannsóknum með prófessor hérna að nafni Bruce Wayne. Nei djók, eftirnafnið er reyndar Turnbull, en það er samt kúl. Þessi snillingur kenndi mér tölfræði síðasta haust og hefur nú fengið mig í lið með sér að kanna svonefnd "adaptive designs." En það snýst um að rannsaka heppilegt skipulag á tölfræðilegum tilraunum og eru þessar rannsóknir hans í brennideplinum í dag sérstaklega hvað varðar lyfjarannsóknir. Þetta er mjög spennandi og aldrei að vita nema maður missi sig í tölfræðinni frekar en fjármálastærðfræðinni eins og staðið hefur til.
Kúrsavalið einkennist allavega af tölfræðidýrkun; minn er skráður í kúrs sem einblínir á Bayes greiningu (undirgrein í tölfræði) og annan sem snýst um meðhöndlun risastórra gagnasafna ("statistical machine learning," einnig undirgrein í tölfræði). Svo fylgir nú eftir þriðji kúrsinn sem fjallar um slembitegur og slembnar afleiðujöfnur. Svo ætla ég að sitja og fylgjast með kúrsi í líkindafræði en hann kennir þungavigtamaðurinn Evgenii Borisovich Dynkin. Það má í raun segja að hann (ásamt nokkrum öðrum) hafi fundið upp líkindafræðina eins og við þekkjum hana í dag og því áhugavert að sitja og fylgjast með þegar þessi maður er að kenna. (hann er hins vegar annálaður fyrir að vera með eindæmum kröfuharður og setja fyrir afar þung dæmi og próf, sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég læt mér nægja að fylgjast með frekar en að taka kúrsinn til að fá einingar)
Eftir tvær vikur þarf ég svo að standast síðustu raunina áður en ég verð fullgildur doktorsnemi. Eftir að hafa skilað nógu góðum árangri í kúrsum síðasta vetur þá er aðeins eftir að halda fyrirlestur um valda grein og reyna að heilla dómnefnd upp úr skónum með visku og snilld. Þetta er vægast sagt mjög stressandi og ekki ólíklegt að maður loki sig af þangað til að þessu er lokið, nú er að standa sig!
Maður verður nú samt að reyna að eiga sér eitthvað líf á meðan þessu öllu stendur og í raun af nógu að taka í þeim málum í haust. Að vanda þá er fótboltinn iðkaður á meðan veður leyfir. Ég var kosinn "Soccer Sultan" af deildinni síðasta vor sem þýðir að það er á minni ábyrgð að hóa saman í vikulegan bolta og sjá um öll atriði er að því koma. Mátulega skemmtilegt starf, enda getur verið býsna erfitt að draga sumt af þessu fólki burt frá skrifborðunum. Einnig er spilaður fótbolti með liði hérna í Íþökudeildinni, á reyndar eftir að sjá hvernig það gengur en ég hef verið boðaður í leik á morgun (spáin segir rúmlega 30 stiga hiti...).
Íshokkí hófst aftur nú á miðvikudaginn var og ég mætti að sjálfsögðu. Kannski aðeins ryðgaður á skautum en þetta var nú furðu fljótt að koma, og í lok tímans var ég kominn upp frá því að geta ekki blautan skít í að geta afskaplega lítið. Batnandi manni er best að lifa sagði víst einhver...
Ég skráði mig einnig í íþróttakúrs fyrir haustið. Valið stóð lengi vel á milli handbolta, tennis og badminton en þegar upp var staðið varð Kung Fu fyrir valinu. Segjum ekki meira um það í bili en ég skal láta vita hvernig það gengur.
Annars komst ég að því fyrir rúmri viku að lambakjöt er fáránlega dýrt hérna í Bandaríkjunum. Við Dee ætluðum að eiga saman notalega kvöldstund og ákváðum að elda lamb svona til tilbreytingar. Farið var í stærstu matvöruverzlunina hérna beint í kjötborðið. Sannarlega ekki jafnflott úrval og í FK eða Nóatúni en jú, þarna voru einhverjar kjötsneiðar merktar sem lamb. Við keyptum tvær slíkar (á stærð við ósköp venjulegar lambalærissneiðar heima) og borguðum fyrir góðan 3000 kall! Í sömu ferð keyptum við einnig tvær fáránlega stórar nautalundir, sem kostuðu 1000 kall... gaman gaman.
Ég reyni nú hvað ég get til að kenna Dee tvennt. Annars vegar er það íslenskan sem er náttúrulega algjört grundvallaratriði. Hins vegar er það hvaða liði á að halda með í enska boltanum. Ég er svo heppinn að geta horft á þessa leiki hérna úti og með því reyni ég að gera henni grein fyrir hvað veltur mikið á því að MUFC sigri sína leiki og vinni titla. Það væri náttúrulega mis að hleypa manneskjunni til Íslands haldandi það að styðja önnur lið væri bara allt í lagi. Slíkt get ég ekki leyft mér sem ábyrgur Íslendingur.
Við stefnum á að koma bæði til Íslands um jólin og eyða þar 1-2 vikum í rólegheitum. Kem með fréttir þegar það er allt orðið staðfest...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2007 | 22:52
Úr hlýjunni í ...
Kominn út á JFK og sit í makindum og bíð eftir brottför, sötrandi Heineken. Það er að sjálfsögðu mikil tilhlökkun að koma heim, þótt undanfarið hafi ég pælt mikið í því hvað sé í raun "heim" hjá mér núna. Að sjálfsögðu er Ísland alltaf "heima" en nú þegar maður er í sambúð erlendis meðfylgjandi löngu námi þá er erfitt að segja annað en að ég eigi heima í Íþöku. Og er það að sjálfsögðu hið besta mál, enda þægilegt að búa þar. Því miður kemst Dee ekki til Íslands í sumar en hún var nýlega að byrjar í nýrri vinnu og því ekki mikið um frí til að skoppa yfir tjörnina til að sjá miðnætursólina. Hún kemst þó til Florida í nokkra daga til að heilsa upp á fjölskyldu og vini, hún að sjálfsögðu mjög sátt við það...
Annars er kannski vert að minnast á það að ég var að ljúka önn nr. 2 hérna í Cornell. Þetta hefur gengið þokkalega hingað til en ljóst að maður á enn langt eftir í land. Meðallengd náms er víst 5 ár og þetta því rétt að byrja. Mér líst samt vel á þetta, og það verður sannarlega spennandi þegar kúrsaálagið minnkar og ég kemst í að rannsaka. Reyndar var ég kallaður á skrifstofu kennara eins í mars og hélt að nú ætti að fara að skamma mig. Óekki, kauði bauð mér að vinna með sér í sumar í ákveðnum rannsóknum en ég varð því miður að segja nei enda löngu búinn að skrifa undir plögg varðandi vinnu hjá Kaupþingi. Það verður bara að gerast næsta sumar...
Get varla sagt annað en að ég sé sáttur við nýja ríkisstjórn. Þetta eru þeir tveir flokkar sem mér hefði helst dottið í hug að kjósa og gott að vera loksins laus við blessaða Framsóknarmenn úr þessari stjórn! Aldrei að vita hvort nú verði bremsað rækilega á stóriðjuframkvæmdir og við Íslendingar fáum loksins að eiga landið okkar í friði fyrir álverum og slíku ógeði... maður vonar
Nú ætla ég að huga að mallanum, en hann kallar á almennilegan mat. Svo er það HEIM til Íslands innan skamms og sjáumst öll hress og kát á næstu dögum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.5.2007 | 19:52
Sumarlegt
Þá er sumarið loks komið til Íþöku, 30 stiga hiti hér undanfarna daga og algjör blíða. Reyndar hefur verið frekar skrítið veðrið hérna í apríl og byrjun maí. T.d. snjóaði all hressilega á afmælisdaginn minn, algjör blindbylur. Svo tveim dögum síðar var 20 stiga hiti og hreint yndislegt úti. Ég held ég taki frekar stöðuga veðráttuna heima á Íslandi...
Ég kláraði prófin á föstudaginn var og gekk þokkalega, enn bíður maður eftir endanlegum niðurstöðum en þetta ætti nú að reddast. Svo hef ég bara verið að slaka á og gera ekki neitt, um að gera að njóta þess áður en sumarvinnan í Kaupþingi hefst í næstu viku.
Reyni að skella inn einni færslu til viðbótar svona til að taka saman helstu atburði vorsins, en nú er það að skoppa út í búð og kaupa alls konar raftæki sem ég hef verið beðinn um að taka með heim...
Bless á meðan!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
BaLLoG lýgur aldrei
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 5800
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

hbb




